Jæja gott fólk, það líður orðið allt of stutt á
milli færslna hjá mér, enda er ég athyglissjúkur, (held að
flestir sem þekkja mig eitthvað viti það nú þegar) en það er
ýmislegt sem er búið að brasa, byrja bara á því að ég fór með
Alla og Ásu í bæinn,,,,, fékk sirka 10mín til að ákveða það, og
Alli búinn að lofa að hitta mig alveg svaka mikið í bænum ef t.d
Karítas yrði nú mikið í skólanum,,,,,, það passaði heim og saman
það var sko nóg að gera í skólanum hjá henni, stundum of
mikið
En ég fór nú líka í bæinn til að hitta minn yfirþyrmandi fallega
frænda hann Hauk Helga Þorvaldsson, myndi seigja að þetta væri
verðlauna stykki þarna á ferð
Svo eru Gunnar og Ólöf búinn að
skjóta einum gæjanum í viðbót í heiminn og var hann ekki af verri
endanum, en hann var líkur pabba sínum þegar mig bar á
dyr.....hágrenjandi og Ólöf að hugga hann, uffff Greyis Ólöf að
vera allt í einu komin með tvö.......nei ég seigi nú svona, hann
var mjög fallegur (eins og mamma sín) Svo oru Ágústa og Gulli að
skýra um helgina og fékk stúlkan hið fallega nafn að gjöf "Vigdís"
mjög gott, mjög gott (sagt eins og Öddi myndi seigja það)
Karítas mín kom þar síðustu helgi í heimsókn í fjörðin fagra, var
ég búinn að ákveða að bjóða henni að bera Kristján Hauksson augu í
showinu.....en nei þá var aflýst sýningunni..... frábært eða ekki,
get lofað því að ég hefði ekki valdið henni vonbrigðum ef hún hefði
séð showið

Fór í síustu viku að dúkalegja með Bóbó uppi í Fljótsdalsvirkjun,
það var mjög gaman að vera þarna með Bóbó, hann var að syngja
þvílíku blús aríurnar þannig að það hljómaði í allri virkjunnunni
sumir svona að kíkja hvað væri að gerast, hvort dúkararnir væru
alveg orðnir uppdópaðir af dúkalími,,,, held nú að kallinn hafi
ekki verið undir áhrifum, en það var svolítið sniðugt að sjá
kallana kíkja á gamla kallinn
Held að þetta sé orðið gott í bili
Stinnmæster kveður að sinni
P.s Hafið þið eitthvertíman "staðið á öndinni" ég
meyna maður spyr sig sko, ha, humm, híhí, prump og hnerr